Aðalfundur Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri verður haldinn fimmtudaginn 23. apríl n.k. og hefst kl. 18:00 með veitingum
- hvitak
- 4 days ago
- 1 min read
Dagskrá fundarins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritaraGengið úr skugga um að rétt hafi verið boðað til fundarins.

2. Skýrsla stjórnar kirkjunnar.
3. Reikningar kirkjunnar fyrir árið 2025 verða lagðir fram og bornir upp til samþykktar. (Vinsamlega ath. að þeir munu liggja frammi til skoðunar dagana 14. – 17. apríl á safnaðarskrifstofu kl. 10-12)
4. Kosningar
Kannaður verður hugur safnaðarins samkvæmt Safnaðarsamþykktum, til næstu tveggja ára, til hluta sitjandi öldunga og stjórnarmeðlima.
Þeir eru Ásdís Jóhannsdóttir öldungur og stjórnarmaður, Snorri Bergsson öldungur, Haraldur Pálsson öldungur, Hólmsteinn Sigurðsson öldungur og Guðrún Guðmundsdóttir stjórnarmaður.
5. Önnur málVilji menn senda inn málefni á fundinn skal það gert fyrir 15. apríl n.k.
Tekið er við málefnum í gegnum netfangið hvitak@hvitak.is eða í pappírsformi á skrifstofu kirkjunnar.
Kær kveðja frá stjórn Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri,Guð blessi ykkur.




Comments