top of page

Trú okkar


Hvítasunnukirkjan er fyrst og fremst kristin kirkja og getur skrifað undir allar grunntrúarjátningar kristinnar kirkju í gegnum aldirnar. Kirkjan hefur mikinn áhuga á og tekur þátt í samkirkjulegu starfi. Megin áhersla okkar er sú að trúin sé ekki innantómt form eða venja.

Við trúum á Guð sem heyrir bænir, við fylgjum Jesú sem huggar þá sem eru sorgbitnir, gefur þeim von sem skortir von og þeim tilgang sem eiga ef til vill allt, en skortir þó það sem öllu máli skiptir. Við trúum á Heilagan anda, sem er vinur á trúargöngunni dag hvern. Heilagur andi gefur okkur kraft til að takast á við áskoranir og hjálpar okkur að vera verkfæri Guðs til þess að þjóna öðrum.

Við trúum því að allir menn þurfi á Guði að halda. Við trúum því að Jesús Kristur sé eina leiðin til Guðs og menn þiggi frelsi og líf frá honum af náð. Við trúum því að það sé rangt að dæma fólk og vilji okkar er að taka vel á móti öllum, eins og Jesús gerir. Hann kom í heiminn til þess að frelsa, en ekki til að dæma.

Trúarjátning Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi

  1.  Við trúum að Biblían sé innblásið og áreiðanlegt orð Guðs. (2. Tím. 3:16).

  2. Við trúum á einn eilífan, þríeinan Guð. Föður, Son og Heilagan anda. (Jes. 40:28;
    Matt. 3:16-17; Jóh. 1:18; 10:30).

  3. Við trúum á Jesú Krist, Guðs einkason, getinn af Heilögum anda, fæddan af Maríu mey. Hann sem var Guð, svipti sig öllu og kom fram sem maður, líf hans var syndlaust og fullkomið. (Lúk. 1:35; Fil. 2:7; Heb. 4:15).

  4. Við trúum því að fyrirgefning synda og friður við Guð fáist aðeins vegna fórnardauða Jesú Krists. Sú fórn var fullkomin og nægir til réttlætingar fyrir alla þá sem iðrast synda sinna. Réttlæting fæst af náð, fyrir trú, án verðskuldunar og er gjöf Guðs til allra sem játast Jesú Kristi. (Jóh. 3:16; Efes. 2:8; Kól. 2:13-15; Róm. 10:9-10).

  5. Við trúum því að Jesús hafi risið líkamlega uppfrá dauðum, stigið upp til himna og sitji til hægri handar Guði föður. (Jóh. 20:20; Post. 1: 1-3, 9; 1 Kor. 15:3-4).

  6. Við væntum endurkomu Jesú Krists, þegar hann hrífur kirkju sína til fundar við sig. Eftir fyrirheiti hans væntum við nýs himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti býr. (Post. 1:9-11; Opb. 21:1;2. Pét. 3:13).

  7. Þeir sem velja að fylgja Jesú Kristi fá Heilagan anda að gjöf. Hann umbreytir hugsun og hegðun eins og Biblían kennir. Hinn kristni verður með tímanum líkari Jesú í orði, verki og viðhorfum. (Galatabréfið 5:22-23; Róm. 12:2; 2. Kor. 5:17; Heb. 12:14; 2. Pét. 3:11).

  8. Við trúum á gildi skírnar Heilags anda og náðargjafanna eins og þeim er lýst í Nýja Testamentinu. (Post. 1:8; 1. Kor. 12 og 14; Efesusbréfið 4:11-12).

  9. Við trúum að kristin kirkja sé stofnuð af Jesú til að vera farvegur fyrir verk Guðs á jörðinni, að skírn í vatni sé aðeins fyrir þá sem hafa tekið á móti Jesú Kristi sem frelsara sínum. Við skírum með niðurdýfingu, til Drottins Jesú Krists í nafni þrenningarinnar. Heilög kvöldmáltíð hefur einungis gildi fyrir þá sem hafa tekið við náð Guðs og eru lærisveinar Jesú Krists. (Kól. 1:18, Matt. 28:19).

  10. Við trúum á eilíft líf hinna endurleystu á himni og eilífa glötun þeirra er hafna hjálpræðinu. (Matt. 25:46; Jóh. 3:16; 1. Þess. 4:17).

bottom of page