90 ára afmæli Hvítasunnukirkjunar á Akureyri
- hvitak
- 4 days ago
- 1 min read
Helgina 30.–31. maí fagnar Hvítasunnukirkjan á Akureyri 90 ára afmæli sínu. Við viljum fagna þessum tímamótum með þakklæti, gleði, samfélagi og lofgjörð – og bjóða þér og þínum að taka þátt í þessari einstöku hátíðarhelgi.

Laugardagur 30. maí – Fjölskylduhátíð kl. 10:00 - 14:00
Dagskrá laugardagsins er fjölskylduvæn og miðar að því að efla samfélagið og tengsja kynslóðirnar. Þar verður meðal annars:
Bænastund,
Ísbrjótur þar sem við tengjum saman kynslóðirnar,
Grillveisla,
Karnival fyrir alla aldurshópa
Samkoma á ensku
Lofgjörðarkvöld kl. 19:00
Sunnudagur 31. maí kl. 11: 00– Hátíðarsamkoma
Á sunnudeginum fer fram hátíðarsamkoma þar sem við minnumst trúfesti Guðs í gegnum árin og horfum fram á veginn með trú, von og þakklæti fyrir það sem framundan er.
“Kalla þú á mig og mun ég svara þér og kunngjöra þér mikla hluti og óskiljanlega, er þú hefir eigi þekkt.”Jeremía 33:3
Verið hjartanlega velkomin á 90 ára afmælishátíð Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri.




Comments