top of page

Velkomin í Hvítasunnukirkjuna á Akureyri

 

Samkomur alla sunnudaga kl. 11:00 - Bænastund alla mánudaga kl. 17:00 - Kirkjan opin alla þriðjudaga-föstudaga kl. 10:00-12:00.

Allir eru hjartanlega velkomnir í kirkjuna. Sunnudagssamkomur eru líflegar stundir, þar sem lögð er áhersla á predikun Orðsins, fjölbreytta tónlist og Guðlega lækningu í gegnum fyrirbæn.                          (Túlkun á ensku í boði)

Við leggjum okkur fram um að taka vel á móti fólki, hvort sem þú tilheyrir kirkjunni eða hefur aldrei komið áður.

Á sama tíma er Barnakirkja fyrir yngstu börnin. Yfirumsjón með barnastarfinu hafa Harpa Hammer,  Salmína Ingimarsdóttir og Steinunn Ósk Ólafsdóttir. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt starf, sagðar eru sögur, sungið, föndrað og margt fleira skemmtilegt og skapandi starf. Börnin byrja á að vera með á samkomunni í stóra sal kirkjunnar og fara síðan saman í barnastarfið með leiðtogunum.

Félagslíf

Í kirkjunni er fólk sem kemur alls staðar að úr samfélaginu og á öllum aldri og algengt er að fólk myndi góð vináttutengsl hvert við annað.

Heimahópar eru starfræktir í kirkjunni, það eru fjölbreyttir hópar sem fólk starfrækir á heimilum sínum. Hóparnir hittast ýmist viku- eða hálfs mánaðarlega, lesa Biblíuna, fjalla um kennsluefni úr kirkjunni, biðja saman og kynnast. Hægt er að óska eftir að komast í heimahóp gegnum skrifstofu kirkjunnar.

Einnig eru Lífhópar. Þar eru það vinir sem lesa Biblíuna og hittast fyrst og fremst til að byggjast upp og vera stuðningur og hvatning fyrir hver annan.

Í kirkjunni er margs konar þjónusta sem þarf að sinna og fögnum við því þegar við fáum nýtt fólk til liðs við okkur.

Hafðu samband – Við viljum gjarnan heyra í þér! Fylltu út formið og við verðum í sambandi við þig.

Dagskrá

Kirkjan er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 10:00 - 12:00

Sunnudagar

11:00 - Samkoma og barnastarf
 

nudagar

17:00 - Bænastund

Þriðjudagar

Kirkjan er opin þri.-fös. kl. 10:00-12:00
Þessa daga er bænastund kl. 10:30


19:00-20:00 Biblíulestur á ensku - Bible reading in English

All English-speaking people are welcome
 

Miðvikudagar 

18:00-20:00 HVAKÓ - Ungfullorðinsstarf fyrir 16-25 ára

Borðum saman kvöldmat, svo er kennsla, umræður  og gott samfélag

 

19:00-20:00 Biblíulestur

Allir velkomnir

Fimmtudagar

10:00-12:00 Kaffihúsamorgnar
Heitar vöfflur og ilmandi kaffibolli í boði kirkjunnar.

 

18:00-20:00 Unglingastarf og Alfanámskeið fyrir 13-15 ára

Léttur kvöldverður, kennsla og skemmtileg samvera

Föstudagar

17:00-19:00 Samvera fyrir 10-12 ára

Kennsla og skemmtileg samvera

Laugardagar 

10:30-12:00 Karlamorgunn  
Einu sinni í mánuði

Hafa samband

Takk fyrir að hafa samband,
við munum svara fljótlega! 

Og ég segi yður: ,,Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða.

 Lúkas 11:9-10

Hvítasunnukirkjan á Akureyri

Upplýsingar

hvitak@hvitak.is
(+354) 461 2220
Skarðshlíð 18, 603 Akureyri

  • alt.text.label.Facebook
  • Instagram

Opnunartími skrifstofu

Gjafir & tíund

Þriðjudaga til föstudaga

kl. 10:00 - 12:00

Kt. 490780-0769
Gjafir: 0162-26-52081
Tíund: 0162-26-56052

Viðtalstímar eru á opnunartíma skrifstofu

og utan opnunartíma eftir samkomulagi

bottom of page