Bænaganga 2025
- hvitak
- Apr 23
- 1 min read
Updated: Apr 24
Gleðilegt sumar, kæru bæjarbúar!
Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin í árlega bænagöngu sumardagsins fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl 2025. Þetta er dýrmætt tækifæri fyrir okkur öll að koma saman og biðja fyrir velferð bæjarins okkar og íbúum hans.

Hver og einn gengur í sínu hverfi, einn eða með öðrum, eins og hver vill. Biðjum og þökkum fyrir fallega bæinn okkar.
Að göngu lokinni hittumst við öll í Hvítasunnukirkjunni milli klukkan 11 og 12, þar sem boðið verður upp á ljúffengan brunch. Þetta er frábært tækifæri til að eiga notalega samverustund, spjalla við nágranna og njóta góðra veitinga.
Komum saman og tökum þátt í að byggja upp sterkt og samheldið samfélag! Allir eru velkomnir og við hlökkum til að sjá sem flesta.
Comments