top of page

Aðalfundur Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2025

hvitak



Kæru bræður og systur í Kristi


Aðalfundur Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri verður haldinn mánudaginn 24. mars  n.k. og hefst  kl. 18:00 með veitingum

 

Dagskrá fundarins:

 

1.     Kosning fundarstjóra og fundarritara

Gengið úr skugga um að rétt hafi verið boðað til fundarins.

 

2.     Skýrsla stjórnar kirkjunnar.

 

3.     Reikningar kirkjunnar fyrir árið 2024 verða lagðir fram og bornir upp til samþykktar.  (Vinsamlega ath. að þeir munu liggja frammi til skoðunar dagana  11. – 14. mars á safnaðarskrifstofu kl. 10-12)

 

4.     Kosningar

a)    Kosning forstöðumanns

Kosið verður um hjónin Jóhönnu Sólrúnu Norðfjörð og Harald Pálsson til að veita kirkjunni forstöðu næstu fjögur ár. Jóhanna mun þá gegna stöðu forstöðumanns og Haraldur vera henni til stuðnings.

 

b)    Kannaður verður hugur safnaðarins samkvæmt Safnaðarsamþykktum, til næstu tveggja ára, til hluta sitjandi öldunga og stjórnarmeðlima.

Þeir eru Jón Sverrir Friðriksson öldungur og stjórnarmaður.

Katrín Harðardóttir stjórnarmaður.

 

b)    Kosning í ráð og nefndir

Guðrún Guðmundsdóttir unglingaleiðtogi.

Ingimundur Norðfjörð unglingaleiðtogi.

Rakel Sara Sverrisdóttir í unglingastjórn.

 

5.     Breytingar á safnaðarsamþykktum

Stjórn kirkjunnar gerir að tillögu sinni að grein nr. 6 verði breytt þannig: Aðalfundur kirkjunnar skal haldinn eigi síðar en 30. apríl ár hvert. 

Núverandi orðalag er: Aðalfundur kirkjunnar skal haldinn í mars mánuði ár hvert.


6.     Önnur mál

Vilji menn senda inn málefni á fundinn skal það gert fyrir 21. mars n.k.

Tekið er við málefnum í gegnum netfangið hvitak@hvitak.is eða í pappírsformi á skrifstofu kirkjunnar.

 

 

Kær kveðja frá stjórn Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri

Guð blessi ykkur

 
 
 

Comments


Og ég segi yður: ,,Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða.

 Lúkas 11:9-10

Hvítasunnukirkjan á Akureyri

Upplýsingar

hvitak@hvitak.is
(+354) 461 2220
Skarðshlíð 18, 603 Akureyri

  • alt.text.label.Facebook
  • Instagram

Opnunartími skrifstofu

Gjafir & tíund

Þriðjudaga til föstudaga

kl. 10:00 - 12:00

Kt. 490780-0769
Gjafir: 0162-26-52081
Tíund: 0162-26-56052

Viðtalstímar eru á opnunartíma skrifstofu

og utan opnunartíma eftir samkomulagi

bottom of page