Akureyri 6. mars 2024
Kæru bræður og systur í Kristi
Aðalfundur Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri verður haldinn fimmtudaginn 21. mars n.k. og hefst kl. 18:00 með veitingum
Dagskrá fundarins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara Gengið úr skugga um að rétt hafi verið boðað til fundarins.
2. Skýrsla stjórnar kirkjunnar.
3. Reikningar kirkjunnar fyrir árið 2023 verða lagðir fram og bornir upp til samþykktar. (Vinsamlega ath. að þeir munu liggja frammi til skoðunar dagana 12. – 15. mars á safnaðarskrifstofu kl. 10-12).
4. Kannaður verður hugur kirkjunnar til sitjandi stjórnarmanns og öldunga, til næstu tveggja ára.
5. Önnur mál
Vilji menn senda inn málefni á fundinn skal það gert fyrir 15. mars n.k.
Tekið er við málefnum í gegnum netfangið hvitak@hvitak.is eða í pappírsformi á skrifstofu kirkjunnar.
Kær kveðja frá stjórn Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri
Guð blessi ykkur
Comments