Kirkjan stóð fyrir fjölskyldusamveru laugardaginn 10. september sl. þar sem við grilluðum og lékum okkur saman kynslóðirnar, fullorðnir og börn. Veðrið lék við okkur þennan dag og fórum við í alls konar leiki bæði úti og inni. Börnin nutu sín vel í hoppukastala, léku listir sínar með húllahringi og blésu sápukúlur. Við buðum upp á andlitsmálun, sem bæði börn og fullorðnir nýttu sér, spiluðum alls konar spil og fórum í leiki.
Við þökkum öllum þeim sem komu og tóku þátt með okkur kærlega fyrir komuna og skemmtunina, en hátt í hundrað manns tóku þátt í þessari samveru.
Það eru allir hjartanlega velkomnir á allar okkar samkomur, samverustundir og skemmtanir og endilega takið með ykkur vini og vandamenn. Það er svo gott að koma saman í góðra vina hópi og gleðjast saman.
Þriðjudaga til föstudaga
kl. 10:00-12:00
Á opnunartíma skrifstofu og
utan opnunartíma eftir samkomulagi
Facebook
Instagram
Kt. 490780-0769
Gjafir: 0162-26-52081
Tíund: 0162-26-56052